- Fundur settur 18:00, fundur reynist rétt boðaður, Ágúst Hilmarsson formaður kjörinn fundarstjóri, Elmar kjörinn ritari fundarins.
- Fundargerð aðalfundar 2023 lesin upp og samþykkt.
- Skýrsla formanns fyrir starfsárið 2023 lesin og stiklar formaður á stóru í starfi félagsins árið 2023 sem og ástæður þess að IFÍ er til og afhverju vilji er til að halda þessu starfsheiti . Formaður segir frá vinnu með Háskólanum í Reykjavík við aðuppfæra námskrá sem og samtal með Háskóla Íslands við að taka námið inn. Segir frá kærum vegna ólöglega orðaðra útboða á vegum hins opinbera og mikilvægi þess að fylgjast með til að tryggja réttindi Iðnfræðinga. Skýrsla samþykkt einróma.
- Sigurður Örn Árnason gjaldkeri kynnir reikninga félagsins. Athugasemd vegna ártalsins 2014 í yfirliti bankainnistæða, sem og vöntun á færslu á greiðslu stjórnar fyrir fundi, annað hvort vantar útgreiðslu eða færslu sem skuld. Reikningarsamþykktir einróma með fyrirvara um leiðréttingu á þessum tveimur atriðum. Einnig kom fram að greiðsluseðlar fyrir árið 2024 hafa ekki verið sendir út.
- Tillaga um óbreytt félagsgjöld kr. 5.000.- á ári. Tillaga samþykkt einróma.
- Stjórnarkjör, stjórn situr óbreytt, en þó færist Elmar Freyr Torfason í sæti meðstjórnanda og Tómas Alexander Árnason í sæti varamanns.
Ný stjórn lítur þannig út:
Ágúst Hilmarsson, formaður, Sigurður Örn Árnason, gjaldkeri.
Meðstjórnendur, Helgi Pálsson, Elmar Freyr Torfason.
Varamenn: Tómas Alexander Árnason, Óskar Ólafsson, Aðalsteinn Magnús Friðjónsson. - Skoðunarmenn reikninga, Benedikt Benediktsson situr áfram og Hermundur Sigurðsson kemur nýr inn, (hemmisis@gmail.com ; 8605293)
- Önnur mál;
a. umræða um sögu félagsins, formaður segir frá aðilum sem hann komst í samband við sem tilheyrðu fyrsta útskrifarhópnum 1971 eða 72, þeir útskrifast sem raftæknar, en fljótlega kom nýtt starfsheiti ræstitæknir sem gerði það að verkum að raftæknarnr fundu sér nýtt starfsheiti, IFÍ verður til seinna, mögulega í kringum 1980, löggilding starfsheitisins kemur síðan í kringum 1990.b. Ályktun um samstarf milli IFÍ og Húss Fagfélagana samþykkt á aðalfundi vegna framhalds viðræðna við RSÍ, VM og Húss fagfélaganna. Aðalfundur IFÍ, haldin 23. apríl 2024, samþykkir að gefa formanni og stjórn leyfi að halda áfram viðræðum sínum um að koma daglegri starfsemi og rekstri félagsins undir hatt „Hús Fagfélagana“ til að tryggja að félagið fái frekari stuðning félaga eins og RSÍ og VM til framtíðar. Aðalfundurinn samþykkir að stjórnin gangi til þessa samstarfs ef fýsilegur samningur verður í boði fyrir Félagið. Samþykkt einróma.
c. Umræða um heimasíðu, formaður segir frá ástæðum þess hvers vegna heimasíðan er eins og hún er og frá starfi við nýja heimasíðu, hún er langt komin og stendur upp á stjórn að hafa ekki komið henni í loftið, fundurinn hvetur stjórn til að klára þetta mál. Mikilvægt að fá lög félagsins aðgengileg á vef, jafnvel skráningar hnapp í félagið á téða síðu.
d. Umræða um mikilvægi þessi að auka réttindi Iðnfræðinga til þess sem áður var fyrir breytinguna 2011 þar sem réttindi Iðnfræðinga voru skert við 315A, því með mikilli fjölgun rafbíla og heimahleðslustöðva er þetta mikilvægt atriði.
Fundi slitið 19:33