- Ágúst formaður heldur stutta kynningu, og opnar fundinn klukkan 18:02.
- Tilllaga gerð um Ágúst sem fundarstjóra, hún samþykkt einróma.
- Ágúst flytur skýrslu um starf ársins 2024, stiklar á stóru í starfi félagsins á árinu. Ágúst segir frá FB síðu félagsins og nýrri heimasíðu sem mun sennilega fara í loftið á næstu dögum. Síðan tilbúin en þarf að fá uppfærslu af nýjustu fréttum. Félagið að vinna í að uppfæra netfangalista félagsins. Já.is og útskriftarnemar eru til aðstoðar við þá uppfærslu. ÁH tekur fram að það sé valfrjálst að vera félagsmaður, en ítrekar mikilvægi þess að vera í því. Án félags er ekki nein lögverndun. Mikilvægt að halda þeirri stöðu gagnvart markaði. Félagið ekki stéttarfélag, það er fagfélag og á að halda áfram sem slíkt og vinnur gagnvart ráðuneyti við að veita löggildingu. Mikilvægt að allar kærur vegna útboða skili sér innan kærufrests, annars skipta lögbrot ekki máli. Einnig unnið í því að fá útskýringar hjá ráðuneyti um breytingar á réttindum félagsmanna við hönnun á rafmagnsheimtaugum. RSÍ ætla að aðstoða félagið í þeirri vegferð. Ágúst segir frá líklegu samstarfi félagsins við Hús Fagfélaganna, hann fer yfir samningavinnu gagnvart Húsi Fagfélaganna og hvernig hún hefur gengið. Í fyrsta sinn hefur félagið fengið löggiltan bókara til að vinna ársreikninga. Mögulega mun heimilisfang félagsins færast til Stórhöfða ef aðildarfélög samþykkja. Félagið heldur úti vöktun á reglugerðarbreytingum og kærir ef á iðnfræðinga hallar. Mikilvægt að slíkar breytingar fari ekki í gegn. Opnað fyrir umræður um skýrslu formanns. Skýrsla samþykkt einróma.
- Sigurður Örn Arnarson, gjaldkeri kynnir ársreikninga félagsins og þeir bornir upp til samþykktar. Athugasemdir vegna tveggja stafsetningavillna á forsíðu, „Rúnir Bókhaldsþjónustaa ehf, Mosfellsgær“ ætti sennilega að vera „Rúnir Bókhaldsþjónusta ehf, Mosfellsbær“, einnig vantar útlistun á stjórn félagsins á síðu 2. Samþykkt einróma.
- Tillaga um óbreytt félagsgjöld, kr. 5.000.- Samþykkt einróma.
- Stjórn bíður sig til áframhaldandi starfa: Ágúst Hilmarsson, formaður, Sigurður Örn Árnason, gjaldkeri Elmar Freyr Torfason, ritari. Meðstjórnendur: Helgi Pálsson og Óskar Ólafsson Varamenn: Tómas Alexander Árnason, Aðalsteinn Magnús Friðjónsson. Samþykkt einróma.
- Kosning tveggja skoðunarmanna. Benedikt Benediktsson situr áfram, Óskar Frank Guðmundsson kemur nýr inn.
- Lagabreytingar:
a. Núverandi 9. grein hljóðar svo, „Fundum í félaginu skal stjórna samkvæmt bókinni Fundarsköp, (útgefin af Erni og Örlygi 1979). Til almennra funda í félaginu skal boða skriflega með tveggja vikna fyrirvara. Telst það nægilegt að auglýsa almenna fundi á heimasíðu félagsins eða senda fundarboð á netfangalista félagsmanna. Auk þess skal auglýsa aðalfund félagsins í Fjölmiðlum.“
Lagt til að ný 9. Grein hljóði svo: „Til funda í félaginu skal boða skriflega með viku fyrirvara. Telst það nægilegt að auglýsa almenna fundi á heimasíðu félagsins eða senda fundarboð á netfangalista félagsmanna. Ennfremur skal birta Aðalfundarboð í fréttamiðlum sem ná til sem flestra félagsmanna auk vefmiðla Félagsins.“
b. Núverandi 10. grein hljóðar svo: „Aðalfund félagsins skal halda í febrúar-mars ár hvert. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað.“Dagskrá aðalfundar skal vera svo hljóðandi:
1. Stjórn félagsins gefur skýrslu um starfsemina á liðnu ári.
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.
3. Félagsgjöld ákveðin.
4. Stjórnarkjör samkvæmt 15. grein þessara laga.
5. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
6. Lagabreytingar, ef fram koma.
7. Önnur mál.Lagt til að ný grein hljóði svo: „Aðalfund skal halda fyrir lok maí ár hvert, fundinn skal boða skriflega með minnst sjö sólarhringa fyrirvara. Í fundarboði skal getið dagskrár fundarins. Ennfremur skal birta fundarboð í fréttamiðlum sem ná til sem flestra félagsmanna og miðlum félaginu tengdu. Ef tillögur um breytingar á lögum félagsins liggja fyrir skal geta þeirra í fundarboði.“
Dagskrá aðalfundar skal vera svo hljóðandi:
1. Kosning fundarstjóra.
2. Stjórn félagsins gefur skýrslu um starfsemina á liðnu ári.
3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.
4. Félagsgjöld ákveðin.
5. Stjórnarkjör samkvæmt 15. grein þessara laga.
6. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
7. Lagabreytingar, ef fram koma.
8. Önnur mál.Báðar lagabreytingar samþykktar, einróma.
- Önnur mál.
a. Umræða um réttindi Byggingariðnfræðinga og Rafiðnfræðinga, væri gott að geta þrýst á ráðuneytið til að fá aukin réttindi Byggingariðnfræðinga til að teikna hús, bústaði etc. Hér þarf að semja greinargerðir og fá aðstoð lögfræðings Húss Fagfélaganna.b. Ályktun um samstarf milli IFÍ og Húss Fagfélaganna „Samþykkt á aðalfundi vegna framhalds viðræðna við RSÍ, VM og Húss fagfélaganna. Aðalfundur IFÍ, haldin 14. maí 2025, Samþykkir að veita formanni og stjórn leyfi að halda áfram viðræðum sínum um að koma daglegri starfsemi og rekstri félagsins undir hatt „Hús Fagfélaganna“ til að tryggja að félagið fái frekari stuðning félaga eins og RSÍ og VM til framtíðar. Aðalfundurinn samþykkir að stjórnin gangi til þessa samstarfs ef fýsilegur samningur verður í boði fyrir Félagið.“ Samþykkt einróma.
c. Gunnlaugur Trausti Vignisson kynnir sig, heimkominn úr 30 ára „útlegð” í Noregi, segir frá vinnu þar. Mun skipulegra og betra í Noregi. Langar að sjá breytingar á hönnunarferli kerfa. Fráveita, brunkerfi etc. Stefnt á fræðslufund og kynningu frá Gunnlaugi.
Fundi slitið 19:37