Menntun

Iðnfræði er hagnýtt 90 ECTS eininga nám til diplómagráðu á háskólastigi. Námið er skipulagt þannig að hægt sé að stunda það samhliða vinnu og ljúka því á þremur árum.

Til að útskrifast sem iðnfræðingur, sem er lögverndað starfsheiti, þarf nemandi að hafa lokið sveinsprófi í iðngrein á viðkomandi sviði og veitir námið þá rétt til meistarabréfs.

Iðn- og tæknifræðideild er aðili að samstarfsneti um að þróa og bæta kennslu í verkfræði og tæknifræði. Í dag eru um 100 háskólar frá öllum heimshornum þátttakendur og vinna þeir kerfisbundið að því að bæta skipulag námsbrauta og þróa námsbrautir í tæknigreinum með áherslu á þarfir atvinnulífsins. 

Nám í iðnfræði

Nám í iðnfræði er skipulagt sem þriggja ára nám samhliða vinnu en einnig er mögulegt að ljúka náminu á skemmri tíma. Iðnfræði er kennd í fjarnámi en tvær staðarlotur eru á hverri önn, eina helgi í senn.

Víða á landsbyggðinni geta nemendur fengið aðstöðu til hópvinnu í símenntunarstöðvum, fræðslusetrum og háskólasetrum, en á höfuðborgarsvæðinu býðst nemendum vinnuaðstaða í Háskólanum í Reykjavík.

Nemendur í iðnfræði fá fjölbreytta og hagnýta þekkingu á sínu sviði, styrkja stöðu sína á vinnumarkaði og verða hæfari til að takast á við fleiri og fjölbreyttari störf. Með því að ljúka náminu getur nemandi öðlast meistararéttindi og lögverndað starfsheiti sem iðnfræðingur.

Hægt er að lesa nánar um nám í iðnfræði á vefsíðu Háskólans í Reykjavík.

Rafiðnfræði

Starfssvið rafiðnfræðinga er fjölbreytt en þeir fást til að mynda við hönnun, uppsetningu og eftirlit með stýri-, lýsingar- og raflagnakerfum.

Véliðnfræði

Vélfræðingar starfa m.a. við, teikni- og verkfræðistofustörf, verktakastarfsemi, rekstur, eftirlit með framkvæmdum  og uppsetningu vélbúnaðar.

Byggingariðnfræði

Byggingaiðnfræðingar vinna við fjölbreytt störf. Til dæmis verktakastarfsemi, stjórnun og rekstur byggingarframkvæmda og eftirlit með framkvæmdum.