Byggingariðnfræði
Námið hentar vel fyrir fólk í atvinnulífinu sem vill styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Diplóma í byggingariðnfræði og sveinspróf í iðngreininni veitir rétt til meistarabréfs, ásamt lögverndaða starfsheitinu iðnfræðingur.
Byggingar-iðnfræði
Byggingariðnfræði er þriggja anna diplómanám. Helstu námsgreinar eru tölvuhönnun, rekstur og stjórnun fyrirtækja, byggingartæknilegar greinar, hönnunargreinar og byggðamælingar. Til þess að útskrifast sem byggingariðnfræðingur þarf að hafa lokið sveinsprófi í viðeigandi iðngrein og veitir byggingariðnfræðin þá rétt til meistarabréfs.
Starfsvið byggingariðnfræðinga er mjög fjölbreytilegt en einkum vinna þeir við stjórnun og rekstur byggingarframkvæmda, verktakastarfsemi, áætlanagerð, byggingarfræðilega hönnun, eftirlit með framkvæmdum, mælingar, ráðgjöf og kennslu.
Hægt er að lesa nánar um nám í byggingariðnfræði á vefsíðu Háskólans í Reykjavík.
Byggingariðnfræðingar starfa meðal annars hjá
verktakafyrirtækjum, á verkfræðistofum, við byggingaeftirlit eða sem
stjórnendur á byggingarstað.