Rafiðnfræði

Rafiðnfræðingar fást m.a. við hönnun, uppsetningu og eftirlit með stýri-, lýsingar- og raflagnakerfum. Námið veitir góðan undirbúning með fjölbreyttum námskeiðum, raunhæfum verkefnum og hagnýtu lokaverkefni.

Rafiðnfræði

Rafiðnfræði er þriggja anna diplómanám. Námið er mjög fagtengt og gefst nemendum kostur á að bæta verulega við þekkingu sína og færni á viðkomandi fagsviði. Því lýkur með lokaverkefni þar sem nemendur sýna fram á verk- og faglega hæfni við tæknilegar úrlausnir í hönnun og þróun .

Starfssvið rafiðnfræðinga er fjölbreytt. Þeir starfa við hlið verk- og tæknifræðinga á verkfræðistofum, sem stjórnendur stærri og minni verka þar sem fagþekking er nauðsynleg, við eftirlitsstörf, kennslu, sjálfstæðan atvinnurekstur o.fl.

Hægt er að lesa nánar um nám í rafiðnfræði á vefsíðu Háskólans í Reykjavík.

Rafiðnfræðingar starfa m.a. á verkfræðistofum og hjá orku- og
framleiðslufyrirtækjum við hönnun raflagna og við uppsetningu ýmissa
rafmagns- og stýrikerfa.