Véliðnfræði

Í véliðnfræði er áhersla á véltæknilegar greinar, burðarþolsfræði, varma- og rennslisfræði, vélhlutahönnun, rekstur og stjórnun fyrirtækja ásamt hagnýtu lokaverkefni. Námið hentar vel fyrir fólk í atvinnulífinu sem vill styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Véliðnfræði

Véliðnfræði er þriggja anna diplómanám. Aðalnámsgreinar í véliðnfræði eru tölvuteikning og hönnun, véltæknilegar greinar ásamt rekstri og stjórnun fyrirtækja. Þá er lögð áhersla á umhverfisfræði, endurvinnslu, verkefnavinnu í raunumhverfi og notkun tölvuforrita við hönnun og herma.

Starfssvið véliðnfræðinga er fjölbreytt og má t.d. nefna teikni- og verkfræðistofustörf, verktakastarfsemi, rekstur og stjórnun smærri fyrirtækja, eftirlit með framkvæmdum, tryggingamat og umsjón með uppsetningu vélbúnaðar.

Til að öðlast starfsheitið véliðnfræðingur þarf nemandi að hafa sveinspróf í einhverri málmiðnaðargrein og veitir það honum jafnframt rétt til meistaraprófs í þeirri iðngrein.

Hægt er að lesa nánar um nám í véliðnfræði á vefsíðu Háskólans í Reykjavík.

Í atvinnulífinu starfa véliðnfræðingar á verkfræðistofum, við vélahönnun hjá orku- og framleiðslufyrirtækjum og eftirlit með uppsetningu og framkvæmdum á ýmsum vélbúnaði.

Iðnfræðingafélag

Íslands

  • Kt. 410480-0349
  • www.ifi.is
  • ifi@ifi.is

Hafðu samband